Þessi lúxus golfíbúð í Campoamor er aðeins steinsnar frá hinum virta Campoamor golfvelli og hóteli, íbúðin er yfir 120 fermetra og er fullbúin húsgögnum og með loftkælingu í hverju herbergi.
Stóru svalirnar eru í suður með fallegu útsýni. Íbúðin er staðsett í kyrrlátu umhverfi, nálægt nauðsynlegri þjónustu og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá fallegum ströndum Costa Blanca.
Sameiginleg sundlaug ásamt leiksvæði fyrir börn.
Viltu fá fleiri upplýsingar um þessa eign? Hafðu þá samband hér. Eða í síma 616 8880
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. Pantaðu upplýsingar um skoðunarferðir hér.
Kostnaður við kaupin: Ofan á auglýst verð kemur 10% spænskur söluskattur. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3 til 4 % kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13 til 14%.
Við erum í samtarfi við flesta byggingarverktaka og fasteignasölur á Costa Blanca svæðinu.
Við getum einnig bent þér á lána fyrirtæki sem lánar allt að 70% af kaupverði.
Hafðu samband ef þú vilt fá upplýsingar um lán á Spáni: Smella hér.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2016 og á Íslandi frá árinu 2004
Sigurður er löggildur fasteignasali á Íslandi og Ágústa hefur lokið námi í löggildingu fateigna á Spáni.