×

Einbýlishús í Lomas De Cabo Roig

Verð 790.000€ 118.740.841 ISK

Cabo Roig - Costa Blanca South
  • 5 Svefnherbergi
  • 4 Baðherbergi
  • 180 m2

Stórt einbýlishús í Lomas de Cabo Roig
Húsið er í um 10 mínútna göngufjarlægð frá stærstu útiverslunarmiðstöð Spánar, veitingastöðum og matvöruverslunum. 20 mínútna göngufjarlægð á ströndina. Næstu veitingastaðir eru í nokkurra metra fjarlægð.

Húsinu fylgir stórt útisvæði. Þar er útieldhús með vaski, grilli og pláss fyrir stórt borð. Það er líka garður sem er fullkominn fyrir litlu börnin sem leikvöllur. (gervi gras)

Á aðalhæð er rúmgóð stofa, auk eldhúss með innbyggðum tækjum frá Bosch. Einnig er 1 svefnherbergi með aðgangi að garðsvæði, auk baðherbergis.
Á 2. hæð eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Einnig er gengið út á verönd og stiga upp á þakverönd með eigin sturtu. Frá þakveröndinni er frábært sjávarútsýni og sólin þar til hún sest á síðsumarkvöldum.

Í kjallara er stofa, svefnherbergi og baðherbergi.
Einnig er þvottavél á baðherberginu.

Alls eru 4 svefnherbergi með plássi fyrir hjónarúm og tilheyrandi baðherbergi. Einnig er herbergi í kjallara sem nýtist sem svefnherbergi. Þetta er notað sem lager/geymsla í dag.

Svefnherbergin eru fallega innréttuð með góðum rúmum og nútímalegum innréttingum.

Eldhúsið er nútímalegt með innbyggðum vönduðum tækjum.
Í stofu er pláss fyrir borðstofuborð og sófa. 2 útgangar út í garð úr stofu. Komið hefur verið fyrir pergóla frá einni útgangi inn í stofu og eins við útgang úr svefnherbergi.

Viltu fá fleiri upplýsingar um þessa eign? Hafðu þá samband hér. Eða í síma 616 8880

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. Pantaðu upplýsingar um skoðunarferðir hér.

Kostnaður við kaupin: Ofan á auglýst verð kemur 10% spænskur söluskattur. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3 til 4 % kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13 til 14%.

Við erum í samtarfi við flesta byggingarverktaka og fasteignasölur á Costa Blanca svæðinu.

Við getum einnig bent þér á lána fyrirtæki sem lánar allt að 70% af kaupverði. 

Hafðu samband ef þú vilt fá upplýsingar um lán á Spáni: Smella hér.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2016 og á Íslandi frá árinu 2004

Sigurður er löggildur fasteignasali á Íslandi og Ágústa hefur lokið námi í löggildingu fateigna á Spáni.

 

Fá fleiri upplýsingar
Söluflokkur
Eldri eignir
Tilvísunarnúmer
SB1037
Byggingarár
2020
Orku vottorð
í vinnslu
Upplýsingar
Sundlaug
Privat
Garður
Privat
Margar eignir í hverju húsi. Hér er aðeins ein af þeim. Flestar nýjar eignir snúa í suður og
Suðaustur
Útsýni
Strönd
Bílskur
Privat
Stærðir
Fermetra stærð eignar
180 m2
Fjarlægðir
Fjarlægð frá flugvelli
45 Km
Fjarlægð frá strönd
1.5 Km
Fjarlægð frá bæjarkjarna
1 Km
Fjarlægð frá næsta golfvelli
3 Km
Smáatriði
  • Verönd
  • Kjallari
  • Geymsla
  • Sólstofa
  • Heimilistæki
  • Loftkæling

Óska eftir frekari upplýsingum um þessa eign

*
*
*
-
Cookie icon

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información aquí.