×

Íbúð Í Benidorm - Eldri eignir

Verð 395.000€ 59.370.420 ISK

Benidorm - Costa Blanca North
  • 2 Svefnherbergi
  • 2 Baðherbergi
  • 89 m2

Einstakt útleigu tækifæri í Benidorm.

Á 29. hæð í Torre Lugano er þessi glæsilega íbúð með töfrandi útsýni yfir alla Benidorm, fjöllin og hafið.

Torre Lugano byggingin er 2. hæsta bygging Benidorm með samtals 42 hæðir og 158m hæð.

Íbúðin sem er 89m² er með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stofu og stórri verönd þar sem þú getur notið sólarinnar og útsýnisins. Íbúðin snýr í suðurátt, er mjög vel við haldið og er með nýrri Daikin loftkælingu með WIFI frá 2024.

Einnig fylgja 2 einkabílastæði.

Íbúðin er með ferðamannaleyfi og er nánast alltaf í útleigu til ferðamanna. Eignin hefur sína eigin vefsíðu. Arðsemin er mjög mikil með sannanlegar tekjur árið 2022 upp á 26600 evrur, 2023 : 29.500 evrur og áætlaðar tekjur fyrir 2024 á milli 31000 og 34000 evrur!!

Vefsíða, húsgögn, fylgihlutir, viðskiptavinir, ... Allt innifalið!

Torre Lugano á Benidorm er með 2 stórar útisundlaugar, önnur sundlaug fyrir börn, líkamsræktarstöð, stór garður með leikvelli, tennisvöllur, paddle tennisvöllur og þú getur líka spilað fótbolta og körfubolta.

Torre Lugano er með dyravörð og myndbandseftirlit.

Viltu fá fleiri upplýsingar um þessa eign? Hafðu þá samband hér. Eða í síma 616 8880

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. Pantaðu upplýsingar um skoðunarferðir hér.

Kostnaður við kaupin: Ofan á auglýst verð kemur 10% spænskur söluskattur. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3 til 4 % kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13 til 14%.

Við erum í samtarfi við flesta byggingarverktaka og fasteignasölur á Costa Blanca svæðinu.

Við getum einnig bent þér á lána fyrirtæki sem lánar allt að 70% af kaupverði. 

Hafðu samband ef þú vilt fá upplýsingar um lán á Spáni: Smella hér.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2016 og á Íslandi frá árinu 2004

Sigurður er löggildur fasteignasali á Íslandi og Ágústa hefur lokið námi í löggildingu fateigna á Spáni.

 

Fá fleiri upplýsingar
Söluflokkur
Eldri eignir
Tilvísunarnúmer
RS209798
Byggingarár
0
Orku vottorð
í vinnslu
Upplýsingar
Sundlaug
Nei
Garður
Sameiginlegt
Margar eignir í hverju húsi. Hér er aðeins ein af þeim. Flestar nýjar eignir snúa í suður og
Norðvestur
Útsýni
Strönd
Bílskur
Nice
Stærðir
Fermetra stærð eignar
89 m2
Fjarlægðir

Óska eftir frekari upplýsingum um þessa eign

*
*
*
-
Cookie icon

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información aquí.